DRAMA QUEEN

Ef þetta tekst ekki í fyrstu tilraun þá er þetta ekki hægt!

24.10.2006 11:58:31 / Elva

nýja bloggið....

ætlaði nú bara að minna fólk á nýju bloggsíðuna mína......  www.123.is/elvarut

kveðja Elvan


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 18:12:14 / Elva

Plaza restaurant

Plaza

-restaurant-

 

 

Hádegisverðahlaðborð

 

alla virka daga frá kl 12-14

 

990 kr á mann, gos innifalið

 

 

 

 

Tilboð Sótt:

16" pizza með 3 áleggsteg. + 2L pepsi

eða pepsi max á

899 kr

 

 

kv. Elvan


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 16:37:06 / Elva

Plaza restaurant

minn elskulegi bróðir var að opna nýjan veitingastað á Akureyri... hann heitir
Plaza og er í skipagötunni þar sem pizza 67 var áður... það er gjörsamlega búið að taka allt í gegn og þrífa allt hátt og lágt... endilega kíkkið við og smakkið matinn þarna... hann er æði :)

Mig vantar líka starfsmann í nætursöluna.. vinnutíminn er alla virka daga frá 11-19 og svo einhver helgarvinna líka... ef þið hafið áhuga komið þá og talið við mig eða Braga í nætursölunni og fáið nánari upplýsingar....

Pizzurnar á plaza verða á góðu opnunartilboði... eitthvað undir 1000 kallinum so chek it out :)

hehe smá auglýsing....

kveðja Elva


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 23:19:53 / Elva

nýja síðan er æði

mér líst alltaf betur og betur á þessa 123 síðu... ég held að ég sé bara alveg ákveðin með það að færa mig alfarið þangað....

Þannig þið getið hætt að vona að ég gefist upp og haldi áfram að blogga hérna... en annars var ég að henda inn nýrri færslu og setja inn myndir í myndaalbúmið þannig endilega tékk it át......

123.is bloggarinn :)

www.123.is/elvarut


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 23:27:13 / Elva

nýtt blogg....

hæhæ

Ég ákvað að skipta um bloggsíðu.....

nýja slóðina er:

http://www.123.is/elvarut/

Það þarf lykilorð á síðuna til að skoða hana þannig endilega óskið eftir aðgangi eða hringið í mig til að fá lykilorðið.....

kveðja Elva


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 01:13:48 / Elva

.........

Halló halló.... ákvað að henda inn nokkrum orðum hérna.... ég hef samt ekki frá neinu að segja... ekkert spennandi búið að gerast... Ég er búin að pakka niður öllu úr búðinni minni og fer að vinna á fullu í nætursölunni eftir næstu helgi :) það verður fjör.... Gerði nákvæmlega ekki neitt um helgina... ég eyddi föstudagskvöldinu uppí rúmi með tölvunni minni og öllum geisladiskunum mínum... ég ákvað að fara nú aðeins í gegnum safnið og rippaði inn í tölvuna svona helstu lögunum sem ég hlustaði á... var oft ekki nema 1-2 góð lög á hverjum disk... þannig um að gera að hafa þetta allt á sama stað og búa til diska með lögum sem ég hlusta á í staðinn fyrir að vera endalaust að skipta um disk... en þar sem ég á frekar marga geisladiska þá er ég rétt hálfnuð í gegnum bunkann... sat örugglega í tvo tíma á laugardeginum og hélt áfram... ég verð kannski búin að þessu fyrir jól :)

Ég var að vinna allan laugardaginn í nætursölunni... opnaði um morguninn fór svo heim og lagði mig og mætti aftur um nóttina.... ömurlegur dagur... það var nú ekki mikið að gera... voru einhver slagsmál á laugardagsnóttina.... eftir að hópslagsmálin komu í fréttunum er það víst í tísku að slást í nætursölunni í von um aðrar 15 mínútur af frægð í sjónvarpinu... heheh en þetta var nú svo lítið að þetta var búið eftir örfáar mínútur... Ég var að vinna síðustu helgi líka þegar þessi hópslagsmál voru... og þetta var nú ekki eins ægilegt og þessu var lýst í fréttunum.... aðeins búið að ýkja sannleikann hehe þannig maður gat nú ekki annað en hlegið að þessu bara...

Svo í gærdag... þá komu þarna dr. mister og mr handsome að borða í nætursölunni... haugölvaðir og örugglega á einhverju öðru en áfengi... og það voru svoleiðis stjörnustælarnir að þeir voru eiginlega bara geðveikt hallærislegir.... annar þeirra var í svona gömlum krumpugalla eins og maður átti þegar maður var krakki.. ber að ofan til að sýna öll tattúin og þeir voru bara vibbi.... það var einhver gutti þarna með þeim sem var edrú og hann var orðinn frekar pirraður á því hvernig þeir létu og hann sagði öðrum þeirra bara að hypja sig út ef hann ætlaði að vera með þessi læti... þetta var eins og hann væri að passa tvo freka smákrakka... og við erum að tala um að salurinn var ógeðslegur eftir þetta pakk... kál og sósa gjörsamlega útum öll gólf búið að rífa dagblað og eitt hér og nú blað í tætlur.... þannig ef þeir koma aftur í nætursöluna verða þeir vinsamlegast beðnir um að yfirgefa svæðið bara strax....

jebb alltaf líf og fjör í nætursölunni.... En af öðrum fréttum... þá var bróðir minn að kaupa reksturinn af pizza 67... þannig ég verð nú með annan fótinn þar líka... Ég get alveg lofað ykkur því að þessum stað verður breytt til batnaðar... Þannig ég skora á alla að koma þegar það verður opnað aftur og smakka nýjar og betri pizzur :)

Ég er búin að liggja uppí rúmi í gjörsamlega allan dag.... og horfa á sjónvarpið og akkurrat núna er the Hulk í sjónvarpinu... get ekkert að því gert en mér finnst þessi mynd bara ekkert spennandi og varð tölvan fyrir valinu.... en jæja þetta er orðin ágætis færsla og kominn tími á að hætta þessu bauli í bili ....

þangað til næst... hafið þið það gott elskurnar....

Elvan


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 12:31:42 / Elva

ný færsla

Halló halló... Síðasti opnunardagurinn í vinnunni minni í dag... sjibbíííí svo er það bara að fara á fullt og pakka niður.. annars er alveg rosalega lítið að frétta....

Ég fór jú á djammið um helgina... það var fámennt en góðmennt.. fórum fyrst á kaffi amor og þar var ENGINN en það var alveg passlega margt á kaffi ak og ég skemmti mér alveg konunglega og met var slegið.... við entumst bæði til 04:00 það hefur ekki gerst í mjög langan tíma... yfirleitt komin heim svona síðasta lagi hálf 3 hehe það er svona þegar maður er orðinn gamall :) Það voru að sjálfsögðu slagsmál á kaffi ak...einhverjir utanbæjarguttar með töffarastæla hehe þetta endaði með lögguni og látum....

Ég vaknaði bara eiturhress á laugardaginn... ótrúlegt að ég hafi ekki orðið timbruð.. reyndar var þetta nú ekki mikið áfengismagn sem fór ofan í mig þetta kvöldið held að það hafi hjálpað aðeins til.. heheh brunaði í bæinn og fór á starfsmannafund í nætursölunni, skrapp svo aðeins á kaffihús með henni Elfu minni og svo bara heim að lulla aftur til að vera vel undirbúin fyrir næturvaktina í nætursölunni.... við vorum bara 3 að vinna... erum venjulega 4 en hann elskulegur bróðir minn reiknaði með því að það yrði bara rólegt hjá okkur en þarna skjátlaðist honum heldur betur..... það var allt crazy.... brutust út hópslagsmál inní búllunni og éghélt að kofinn myndi bara hrynja lætin og höggin voru það mikil... þar sem þetta fólk var nú alveg örugglega á einhverju öðru en áfengi þá létum við þetta fólk bara alveg í friði og reyndum ekki einu sinni að stoppa þessi slagsmál.... mín hringdi bara á lögguna í staðinn og það tók nú alveg sinn tíma fyrir þá að koma sér ástaðinn og sendu þá tvær löggur til að stoppa hrúguna... en sem betur fer þá tók það ekki langan tíma.... allavega að koma þeim út.. ég hef svo ekki hugmynd um hvað gerðist fyrir utan hurðina.... en allavega var salurinn vel ógeðslegur eftir þessa nótt og mikið að þrífa :)

jább maður lendir alltaf í ævintýrum í þessari vinnu :) Það er alveg greinilegt að framhaldsskólarnir eru byrjaðir.... krakkarnir á aldrinum 16-17 ára hafa voðalega lítið annað gera á kvöldin en að hanga í nætursölunni... og jafnvel bara allan daginn frá morgni til kvölds... og við erum sko að tala um gelgjur dauðans ég fæ alveg klígju þegarég sé þetta pakk... og gribban ég er ekki lengi að henda þeim út ef þau eru með einhver læti.... ég nenni sko ekki að hlusta á píkuskræki og uppkreistingshlátur allan daginn!! Ég bara vil ekki trúa því að ég hafi nokkurn tímann verið svona... jú kannski 13-14 ára en ekki eftir það....

Sunnudagurinn fór í svefn... eiginlega of mikinn svefn... jói var að brasa eitthvað úti til að leyfa mér að sofa... en hann var nu fulllengi úti þannig að ég vaknaði bara ekkkert fyrr en hann kom heim kl 18:30 búin að sofa í alveg 10 tíma... sem þýddi auðvitað það að ég svaf ekkert á sunnudagsnóttina og var úldin í allan gærdag...og ég var sofnuð fyrir miðnætti í gær sem gerist ALDREI.... spurning uma ð fara fyrr að sofa : ) ég var nebbla mjög hress í morgun svona úthvíld :)

Ég og Jói eigum tveggja ára afmæli núna um mánaðarmótin :) tíminn er ekkert smá fljótur að líða... mér finnst eins og við séum bara búin að vera saman í nokkra mánuði... Við ætlum að fara eitthvað í tilefni dagsins... það er ekki alveg komið á hreint hvert en það kemur nú örugglega í ljós fljótlega :) get ekki beðið :) þetta verður fyrsta og eina fríhelgin mín í þessum mánuði og ég ætla sko að nýta hana vel :)

næsta fríhelgi verður svo 19 okt. þá ætlum við að skella okkur í borg óttans og kaupa restina af eldhúsinnréttingunni og ég ætla svona aðeins að kíkka á brúðarkjóla.... veit samt bara um eina búð í mjóddinni þannig ef þið vitiið umeinhverjar aðrar þá megið þið endilega láta mig vita :) Hanna elskan mín ætlar að koma með mér og hjálpa mér.... þýðir sko ekkert að taka jóa með í svona leiðangur :) ætli það fari ekki bara allur dagurinn í þetta.... á laugardagskvöldinu er allavega búið að panta okkur í mat og eitthvað djamm þannig að tíminn til að fara í heimsóknir verður mjög takmarkaður því það verður svo örugglega brunað bara snemma heim á sunnudeginum :)

Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili :) þangað til næst

Elvan

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 13:09:23 / Elva

að mygla.....

hæhæ... ég er í vinnunni alveg gjörsamlega að mygla úr leiðindum eins og vanalega... ekkert að gera frekar en vanalega og það er alveg merkilegt hvað maður fær ógeð á internetinu þegar maður hefur ekkert annað að gera á daginn annað en að hanga á netinu... ég er búin að fara blogghringinn nokkrum sinnum... skoða svona 100 barnalandssíður hjá einhverjum börnum sem ég þekki ekki neitt.. sjúk ég veit... þannig ég ákvað að reyna bara að blogga aðeins og sjá hvort tíminn myndi ekki líða hraðar.... það er bara einn galli þegar ég hef ekkert að gera og byrja að blogga þá verða færslurnar mínar svo ofurlangar að enginn nennir að lesa þær til enda nema þeir allra hörðustu :)

Ég gerðist hetja aftur í gær.... í þetat skiptið drap ég risakónguló sem varí bílskúrnum mínum.... ég skipti um skó, fór í skóna hans jóa... ég týmdi sko ekki mínumá þetta kvikindi og svo steig ég bara ofan á hana.... ofsavond.... en ég held ég hafi aldrei séð svona stóra kónguló áður og ég var að deyja´ur hræðslu... og geðveikt gáfað kvikindi... hún var á röltinu yfir gólfið og svo snarstoppaði hún þegar ég byrjaði að tala við hundinn og hún rótaði sér ekki fyrr en ég steig á hana... og þá var ekki aftur snúið hehe :) ætli ég mæti ekki mús í næstu ferð eða eh álíka....

Annars er nú ekkert spennandi búið að gerast hérna á norðurlandinu....fer í vinnuna og heim... og heimavið bíður sjónvarpið eða hundurinn.... við erum búin að finna okkur ágætisleik (ég og hundurinn sko) þetta er athyglissjúkasta kvikindi á jörðinni það þarf að leika við hana 24/7 og ég hef sko ekki þolinmæði í það.... en það skemmtilegasta þessa dagana hjá tíkinni er að láta elta sig.... og hún hleypur eins og andskotinn um alla íbúðina en það er nóg fyrir mig að taka eitt skref þá heldur hún að ég sé að fara að hlaupa á eftir henni... svo vitlaust þetta grey :) hún hefur fengið viðurnefnið sircus monkey.... ef þú ert með snakk eða hnetur geturðu látið hana hoppa á eftir því á afturlöppunumum  alla íbúðina...það er geðveikt fyndið svo ef að jói er að spila á fiðluna þá veðrur hún alveg vitlaus og spangólar og vælir til skiptis sem er líka bara fyndið þannig það getur nú verið svoldið gaman að þessu greyi þó hún geti jú líka gert mann alveg vitlausan :)

Ég ætla að bregða útaf vananum í kvöld og detta hressilega íða og fara á djammið með henni Dóru minni.... ef einhverjir fleiri vilja slást í hópinnþá er það velkomið... ætlum örugglega að byrja heima hjá mér í sveitinni og skella okkur svo í bæinn :) held samt að það sé ekkert spennandi um að vera en við gerumþað þá bara skemmtilegt :)

jæja ég nenni þessu ekki.... stutt færsla í dag og virkilega boring... hehe ég hef kannski frá einhverju spennandi að segja eftir helgi :) þangaið til þá bið ég bara að heilsa ykkur....+

Elvan

ps. það vantar driver fyrir kvöldið.... hver býður sig fram?

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 14:17:59 / Elva

boring

Ég er í vinnunni og er gjörsamlega að leka niður af leiðindum... ég er búin að fá einn kúnna inn síðan kl 12 og það var fyrir klukkutíma síðan... ég er semsagt búin að sitja hérna í tvo klukkutíma og afgreiða 1!!!!!!!!!!!!!!!

Lena og Dóra eru báðar búnar að koma í heimsókn til mín í sígópásu það bjargaði mér alveg... veit ekki alveg hvað ég á að gera af mérþað sem eftir er af deginum!

Ég var ógeðsleg hetja áðan... ég drap minn fyrsta geitung ALVEG SJÁLF... ég er svo stolt af mér að það er ekki fyndið... en ég verð að viðurkenna það að ég var með hjartað í buxunum alveg þangað til hann var dauður.... spreyjaði á hann ca hálfum brúsa af hárspreyi og drap hann svo með dagskránni :) og núna get ég andað rólega þangað til ég fæ annað kvikindi hérna inn
Væri alveg til í að fá frost í svona tvo þrá daga til að gera endanlega útaf við þessi kvikindi......

Það er búið að ákveða það að búðinni minni verður lokað 20 september.. þá hef ég tíma fram að mánaðarmótum til að pakka öllu niður og endursenda... jey hlakka ekkert smá til eða þannig... svo er það bara nætursalan um mánaðarmótin... endalaus hamingja þar... þó það sé nú kannski ekki draumadjobbið að þá er það samt skárra en ekki neitt og bragi getur verið ánægður....

Fasteignasalinn var að hringja matið á húsinu mínu er tilbúið og ég má sækja það þegar ég vil..... sjibbííí þá fæ ég að vita hvað ég´á margar milljónir :) hlakka geðveikt til.......

Eldri bróðir minn var svo góður að skemma fyrir mér framtíðarplanið mitt hehe en samt bara fyndið hvað ég er mikill auli... þegar ég var lítil sagði ég alltaf að ég ætlaði að verða meinatæknir eins og Heiða mágkona... svo þegar ég varð eldri og komst aðþví að í því starfi fælist það verkefni að stinga annað fólk með nálum þá snarhætti ég við og fór að leita að einhverju öðru áhugaverðu sem tókst ekki.... en þá fann ég þetta... lífeindafræði... og svo ákvað bróðir minn að vera svo elskulegur og segja mér að þetta væri bara nýtt nafn yfir meinatækni þannig ég verð bara að gjöra svo vel að láta mig hafa það að stinga fólk með nálum því ég skipti sko ekki aftur um skoðun!!! og hana nú... þannig hver vill vera tilraunardýrið mitt??? hehe :)

svo af´því að ég er komin útí þessa sálma um hvað ég er ljóshærð stundum þá á ég eitt gullkorn fráþví í gærkvöldi.... minn heittelskaði var að sýna mér eitthvað skot í byssuna sína sem pabbi hans hafði gefið honum.... þetta var svona pappaskot.... ég var búin að velta þessu lengi fyrirmér á meðan ég var að skoða skotið... spurði svo eins og asni...finnurðu þá eitthvað fyrir því þegar þú skýtur þessu?? jói var ekki alveg að fatta hvað ég var að meina og ég ekki heldur fyrr en ég ældi útúr mér annari fáránlegri spurningu... þá spurði ég hvort hann væri að meina að hólkurinn utan um skotið væri úr pappa... sem reyndist vera rétt... en það sem ég var búin að ímynda mér var að það væri pappi inní skotinu því áferðin utan áþví var sko ekki eins og pappi... og ég hélt að jói yrði ekki eldri svo sprakk ég náttla úr hlátri líka þegar ég fattaði hvað ég hafði sagt... heilasellurnar voru frekar sofandi þessa stundina....

ég held að veikindin hafi farið svona með mig.... þá verð ég að segja frá öðru svona atviki... við horgemsarnir vorum að spila trivial heima í veikindunum og ég fékk einföldustu spurningu í heimi... allavega einföld fyrir svona friends sjúkling eins og mig... ég fékk semsagt hvað heitir barþjóninn á kaffihúsinu Central Perk í sjónvarpsþáttunum vinum? jújú auðvitað gat ég svarað því og þá ákvað jói að vera sniðugur og sagði eitthvað nafn á fyrrverandi forseta bandaríkjana... man ekki alveg hvað hann sagði...ég bara ohhh var verið að meina hvað hann heitir í alvöru... og um leið og ég sleppti orðinu þá fattaði ég hvað hann hafði sagt og svo heimskulega kommentið sem kom frá mér og við veltumst um af hlátri..... já það er sko alltaf fjör á mínu heimili.... það er sko ekkert auðvelt að búa með svona hrekkjusvíni :) en ég elska hann samt.....

núna get ég alveg ímyndað mér að nokkrir séu hlægjandi og já ég veit ÉG ER LJÓSKA Í DULARGERFI..... ég tek svona köst annað slagið... sem betur fer bara annað slagið  hehehe

ok annar góður punktur.... þó að ég sé rosalega gáfuð þegar kemur að skólabókumog einhverju svoleiðis þá er annað í lífinu sem virðist fara framhjá mér.... ég var einu sinni á leiðinni til RVK með ákveðnum aðila sem ég veit að elskar þessa sögu....  þá er ég einhverstaðar ein í mínum heimi.... og fer að pæla í snúningshraðamælinum í bílnum og spyr svo eins og bavíani... sýnir þessi mælir hvað dekkin snúast oft á mínútu?? og ég hef aldrei á ævinni heyrt nokkurn mann hlægja eins mikið.... auðvitað er þetta fyndið núna en ég var svo að meina þetta....
ég á örugglega mörg önnur svona móment sem ég man ekki eftir semþið megið alveg endielga minna mig á :)

ég vona að þið hafið ekki mistt allt álit á mér litla gáfnaljósinu ég er örugglega ekki sú versta..... en þannig er nú það... þetta sem áttu bara að vera nokkrar línur eru orðin heil ritgerð og svona rétt í lokinn ætla ég að henda inn nokkru sniðugu drasli semég stal af blogginu hans Vignis... takkfyrir mig Vignir... :)

speki dagsins:

THE PAOMNNEHAL PWEOR OF THE HMUAN MNID. Aoccdrnig to a rscheearch at cmabrigde Uinervtisy, it deosn t mttaer in waht oredr the ltteers in a wrod are, the olny iprmoatnt tihng is taht the frist and lsat ltteer be in the rghit pclae. The rset can be a taotl mses and you can sitll raed it wouthit porbelm. Tihs is bcuseae the huamn mnid deos not raed ervey lteter by istlef, but the wrid as a wlohe.


skrítinn skítur :)

njótið vel þangað til næst

kv. mrs blondie

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 15:09:59 / Elva

með lífsmarki... held ég

Jæja þá er ég komin aftur í vinnuna eftir vikudvöl í rúminu... helvítis flensuandskoti... ég er ennþá með rennandi hor og hósta sem er mjög svo girnilegt eða þannig...

ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt ykkur... hefur ekkert spennandi gerst hjá mér síðustu daga.... annað en að sjúga uppí  nefið og snýta mér til skiptis :)
Ég horfði jú alveg endalaust á sjónvarpið... tók mig til og horfði á heila seríu af one tree hill nánast í einni lotu :) svo var líka gott að sofa....

Ég fór svo að vinna í nætursölunni á laugardagsnóttina... alveg gjörsamlega að deyja.. það var nú ekki mikið gagn í mérþann daginn en vonandi þó eitthvað... það var nefninlega alveg brjálað að gera og allir aðrir á djamminu þannig það var enginn til að vinna fyrir mig :(
Það kom geitungur í heimsókn til okkar og smakkaði aðeins á nammiborðinu.. hélt að þessi kvikindi ættu nú bara að vera sofandi á nóttunni og sérstaklega þegarþað er skítkalt og ógeðslegt veður útí... hann lét sig svo bara hverfa sem betur fer... þurfti ekki að hætta lífi mínu í frekari veiðiför :) en það voru geðveikt margir á djamminu... það var bara stöppuð búllan útúr dyrum í meira en klukkutíma og ég veit ekki hvað margir hamborgarar flugu út :)

That is about it... jú ég smitaði jóa.. hann liggur heima veikur líka... hann missti af göngunum allt mér að kenna,.... en það verða aðrar göngur á næsta ári :) þetta er samt búin að vera fín afsökun fyrir hann... koníaksflaskan er alveg að verða búin hehe... verður sko að hreinsa úr sér þetta kvef... ég afþakkaði pent og sat í nokkra metra fjarlægð þegar hann var að drekkaþetta ógeð... finnst ekki góð lykt af þessu...

svona í lokinn þá ætla ég að henda inn einni uppskrift í viðbót bara fyrir Ívar svo hann geti haldið áfram að vera svangur :)

BBQ kjúlli af bestu gerð.... (besti matur í heimi)

Kjúllabringur
50 g smjörlíki
2 dl bbq sósa (ég nota alltaf huts honey mustart bbq sósu)
1 dl apríkósumarmelaði
1/2 dl soya sósa
100 g púðursykur
1 tsk salt ( þar sem það hefur aldrei verið til salt ámínu heimili þá sleppi ég saltinu)

byrjar á því að bræða smjörlíkið í potti...
setur svo allt hitt dótið útí pottinn líka  nema kjúllabringurnar...
leyfir sósunni að krauma þangað til marmelaðið og sykurinn eru bráðnuð saman við restina... meiga semsagt ekki vera mikið af kekkjum í sósunni...

tekur svo kjúllabringurnar, skerð þær niður í bita og setur bitana í eldfast mót og hellir svo sósunni yfir þær... það er mjög gott að láta bitana liggja í nokka klukkutíma jafnvel yfir nótt í sósunni.....

svo er þetta eldað í ofni í klukkutíma við 200°c og þetta bragðast eins og nammi :)

gott að hafa hrísgrjón og kartöflubáta með þessu og ferskt salat :)

Verði ykkur að góðu og njótið vel... ég hef svo vonandi eitthvað spennandi að segja á næstunni...

kv. Elvan

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 11:48:55 / Elva

veik, veikari, veikust

Halló halló.... ég er í vinnunni...fárveik. get ekki beðið eftir því að komast heim... það á að banna svona flensur!

En allavega ég átti yndislegan dag í gær... eða allavega fyrripartinn... Ég fór í dekur hjá hári og heilsu.... mmmmmmmmmmm það var tekið á móti mér og mér boðið uppá kex og osta, ávexti og súkkulaði og ískalt íste mjög nice... fór í fótsnyrtingu og slökunarnudd sem var algjör draumur... nánast hver einasti vöðvi nuddaður... hún nuddaði meira að segja á mér fingurnar... þetta var æði.. mæli með þessu og þetta á ég eftir að gera allavega tvisvar á ári framvegis :)

Ég náði svo í litla snúðinn hans Braga á leikskólann, drengurinn er með munnræpu. þegar þau eru loksins búin að fatta það að þau geta tjáð sig þá stoppa þau ekki.. sem er bara krúttlegt. hann endurtekur öll orð sem maður segir og er orðinn ofsalega klár.. auðvitað náði hann að plata útúr frænku sinni nýjan bíl til að leika með... hvernig var hægt að segja nei við þessa elsku þegar maður er knúsaður í bak og fyrir... Við fórum svo heim og horfðum á strumpana... honum fannst þeir frekar merkilegir og spurði og spurði hver hinn og þessi væri og hvernig hinn og þessi voru á litinn... nema hann vildi ekki sætta sig við það að galdrakarlin heitir kjartan... neibb hann fékk nafnið "kallinn" eins og fleiri hafa fengið... bróðir hans pabba var í heimsókn um verslunarmannahelgina og hann var aldrei kallaður neitt annað en kallinn af herra harðstjóra... sama hvernig maður reyndi að segja honum að hann heitir Þorvaldur... neibb ekki að ræða það "kallinn" skal það vera heheh yndisleg þessi börn :)

Klaufaskapur gærdagsins: ég var eitthvað að beygja mig inní skáp og skallaði svona borðplötuna á eldhúsbekknum og fékk þessa myndarlegu kúlu á hausinn... geri aðrir betur...

Það er að koma fasteignasali í heimsókn til mín á eftir til að verðmeta húsið mitt... sjibbííí þá sé ég hvað ég á margar milljónir :) annars ætla ég bara að halda áfram að vera veik í dag og örugglega næstu daga líka :(

og svona að lokum þá ætla ég að henda inn einni uppskrift frá henni mömmu sem svíkur sko engann!!


heitur réttur "a la mamma"

1 samlokubrauð
1 dós beikonostur
1/4 l kaffirjómi
10-12 skinkusneiðar
6 sveppir
2 paprikur
1/2 blaðlaukur

blaðlaukurinn, sveppirnir og paprikan eru skorin niður og steikt á pönnu með örlitlu smjöri eða smjörlíki..
beikonostinum, kaffirjómanum og skinkunni blandað saman í skál,
síðan er hinu gumsinu af pönnunni bætt útí
brauðsneiðar eru lagðar í eldfast mót (taka skorpuna af)
gumsið sett ofan á... annað lag af brauði sett ofan á það og svo restina af gumsinu efst og svo er settur ostur ofan á og öllu drallinu skellt inní ofn í svona 20 mín eða þangað til osturinn er vel bráðnaður....

nammi namm... þetta er mjög gott bara þessvegna í kvöldmatinn,, eða miðnætursnarl eða bara hvenær sem er... rosa gómsætt

jæja njótið vel og ég heyri í ykkur síðar :)

kv. horgemsinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 11:09:56 / Elva

enn einn mánudagurinn

Shit hvað ég hata mánudaga... mættu allir dagar vera sunnudagar þegar ég þarf ekki að mæta í vinnuna fyrir hádegi :) Mér finnst frekar gott að sofa ZZzzzZZZZzzz það var nú gert ágætlega mikið af því þessa helgina....

Ég gerði samt nákvæmlega EKKI neitt um helgina... var ofsalega stillt... fór bara snemma að sofa á föstudagskvöldið því jú...ég mætti galvösk í vinnuna í nætursölunni kl 10 á laugardagsmorguninn... endalaus hamingja þar eða þannig... júbb viti menn komu ekki nokkrir geitungar í heimsókn til mín þar líka.... en ég var þessi þvílíka hetjan.... fór og ætlaði að drepa einn þeirra með blautu viskustykki þegar hann varð hræddur og flaug út aftur...  þannig ég fórnaði lífi mínu til einskis hehehe hata þessi kvikindi...

Fór svo í barnaafmæli á laugardagskvöldið... þar var hattaþema í gangi nema minn heittelskaði gleymdi víst að minnast á það... gæti líka hugsanlega verið að tengdó hafi gleymt að segja honum frá því... þessir karlmenn... þannig við vorum mjög hallærisleg með enga hatta...svo fóru að bætast við fleiri fjölskyldumeðlimir jóa meginn og þeir mættu heldur ekki með hatta þannig að mig grunar nú að tengdó hafi gleymt að setja þessar upplýsingar með í boðið :) 

Ég var svo húsmóðursleg í gær að þið bara trúið því ekki... ég gjörsamlega þreif allt húsið hátt og lágt... nema ruslakompuna...og bílskúrinn.. hefur held ég aldrei verið svona hreint og fínt hjá mér áður... í ÖLLUM herbergjunum.... þó að stofan, eldhúsið og baðherbergið séu alltaf í toppstandi... fólk þarf ekkert að vera að skoða inní hin herbergin... en núna varð breyting þar á... þannig þið sem hafið komið í heimsókn og allar hurðir lokaðar... ykkur er velkomið að koma aftur til að sjá herleg heitin í réttu ljósi :) Ég keypti mér nýjan geisladisk á laugardaginn.. keypti diskinn úr myndinni walk the line.... snilldar diskur... hann var settur í græjurnar þegar þrifnaðaræðið kom yfir mig og það var sko heldur betur blastað í botn og þá var tíminn sko skotfljótur að líða og heimilisstörfin urðu bara skemmtileg..... undramoppan sem mamma og pabbi gáfu mér stóð sko heldur betur fyrir sínu... mesta snilld að skúra með þessu kvikindi... engin ljót fata í eftirdragi og aldrei að vinda tuskuna :) mæli með þessu..... ég er nú samt ekki frá því að ég vaknaði með strengi aftan í lærunum í morgun... don't ask me why.....

svona hefur mitt líf verið síðustu daga.....

en þá er komið að sögustund:

ætla tileinka þessa sögustund ákveðnum frænda mínum sem við skulu bara kalla Ívar :)

Eins og svo margir vita þá vorum við skaðræðiskvikindi hérna í "gamla daga" þegar við vorum ung... fengum alls kyns hugmyndir um lífið og tilveruna.... einn daginn þá höfðum við ekkert að gera og ákváðum að finna uppá einhverju nýju til að gera þann daginn... það sem varð fyrir valinu var HRÆKJUKEPPNI... ss að hrækja á hvort annað... inní herberginu hans ívars... jújú eftir smá stund var herbergið orðið allt úthrækt eftir okkur bæði... nema við vorum að sjálfsögðu með skjöld til að verja okkur fyrir slummunum.... nema eitthvað færðist skjöldurinn minn til... ég var alveg óundirbúin að jafna mig eftir hláturskast því ég hafði víst hitt ívar... þá var drengurinn búinn að safna þessari þvílíku slummu uppí sig og lét vaða... og viti menn hvar haldiði að hún hafi lent... jú að sjálfsögðu uppí mér... og þetta fór á þann veg að ég ældi eins og múkki í ruslatunnuna í herberginu hans og mamma hans var sko EKKI ánægð með okkur þennan daginn :)

Annað atvik sem ég man eftir... við fórum í eltingaleik með kókflösku... hlupum eins og vitleysingar útum allt hús og hristum fulla tveggja lítra kókflösku í leiðinni.... nema hvað... litlu gáfnaljósin...þau urðu þyrst á hlaupunum og fóru nú inní eldhús og ætluðu að fá sér smá kóksopa til að svala þorstanum... auðvitað gaus allt uppúr flöskunni þegar hún var opnuð og það var bara gjörsamlega allt eldhúsið út atað í kóki... allir veggir og loftið og bara nefndu það... og að sjálfsögðu vorum við heima hjá ívari og mamma hans varð ekki ánægð með okkur þennan daginn heldur :)

Já það var alveg stórhættulegt að skilja okkur tvö eftir ein heima! Við fundum upp nýjan leik...víst að hrækjukeppnin var úr sögunni... þá ákváðum við að slást við hvort annað með alls kyns hreingerningargræjum... þá aðallega einhverjum úðabrúsum með bóni og einhverju skemmtilegu... svona rauðum mr mussle eða hvað þetta nú hélt... og það var komið alveg ágætislag yfir öll gólfin.... nema svo mætir pabbi hans ívars heim í hádeginu... í ullarsokkum btw.. og flýgur svoleiðis á hausinn því gólfin voru jú orðin frekar sleip... en ekki fengum við skammirnar í þetta skiptið... neibb honum datt ekki í hug að litlu saklausu englarnir gætu átt nokkurn hlut í máli þarna hehehe

þetta er svona það sem stendur efst í minninu þessa stundina... því þau voru sko óteljandi atvikin sem við brölluðum saman á okkar yngri árum... þau verða bara rifjuð upp síðar :)

segjum þetta gott í bili... og hafið þið það gott elskurnar... því það er einn kostur við þennan mánudag... ég er að fara í Dekur í Hári og Heilsu á eftir... takk fyrir... pottur, gufa, fótsnyrting og slökunarnudd og eitthvað dúllerí... get ekki beðið..já þið megið sko alveg öfunda mig :)

þangað til næst....

ofurhetjan

ps: ég fór minn venjulega bloggrúnt í morgun... og fólk er sko ekki að standa sig í blogginu... af þessum örugglega 20 síðum sem ég fór inná voru 3 búnir að blogga síðan snemma í síðustu viku... þannig ég held aðég standi mig bara ágætlega í þessu.... :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 15:56:47 / Elva

23 ára og eins dags gömul

Já þá er maður orðinn árinu eldri og einum degi betur... ég er greinilega mjög ómerkileg manneskja því það voru sko ekki margir sem mundu eftir mér í gær.... varð pínu sár... en maður veit þá hverjir vinir manns eru :)

Annars var afmælisdagurinn bara fínn.... var alveg rosalega húsmóðir í mér... ég gerði tvo heita rétti, annan í fyrsta skipti á ævinni og hann heppnaðist bara frábærlega :) en get ekki sagt það sama um perutertuna :/ Var að gera svoleiðis í fyrsta skipti þannig ég byrjaði á því að hringja í bróa og fá smá leiðbeiningar.... en hef eitthvað misskilið hann og þetta klúðraðist alveg í fyrstu tilraun... þannig ég reyndi aftur og þá hringdi mamma akkurrat á meðan ég var að gera seinni tilraunina og hún sagði mér hvernig átti að gera þetta... en einhverju gleymdi hún að segja mér... því rjóminn varð alveg eins... ofsalega þunnur og erfiður... það endaði þannig að rjóminn fór svoleiðis á kökuna... svo hringdi ég aftur í braga og sagði honum nákvæmlega hvernig ég hafði gert þetta!! fékk þá bara :Elva eggið átti að fara SÍÐAST útí rjóman á eftir súkkulaðinu... hefði hann bara getað ungað þessu útúr sér strax þá hefði þetta ekki klúðrast svona.... en bragðið var þó það sama :) það var svo meira en helmingurinn eftir af kökunni og Bragi fékk að éta hana í hádeginu...
Svo var ég með vöfflur í eftirrétt hehehe :) Ég fékk marga góða gesti... aðallega fjölskylduna hans jóa...

Ég fékk nokkrar afmælisgjafir:

* ilmvatn og one tree hill seríu á dvd frá Jóa
* 5000 kr gjafabréf í hár og heilsu frá Bjarna og Höllu
* 5000 kr gjafabréf í hár og heilsu frá Heiðu og Bjarna Snævari
* After eight kassa frá Atla (nammmmm)

Fæ svo snildar moppu frá mömmu og pabba.... það er hægt að setja vatn inní skaftið á henni svo ég þurfi ekki endalaust að dröslast með einhverja fötu á eftir mér til þess að skúra.... pabba fannst þetta nú frekar hallærislegt að gefa mér svona í afmælisgjöf þannig mamma þorði ekki öðru en að spurja mig fyrst og mér fannst þetta bara snilldarhugmynd því það var alltaf á dagskránni að kaupa svona....

Vá ég gleymi alveg að minnast á það að jói eldaði handa mér kjúllabringu  með beikoni og osti.... nammm nammm ofsa gott hjá honum... hann er svo duglegur þessi elska... pg á meðan ég lagði mig þá moppaði hann gólfið og þurkaði af... dagurinn hefði ekki getað verið betri...

Núna er ég í vinnunni að drepa tímann... nenni einhvernveginn ekki neinu.... þegar ég mætti í vinnuna í hádeginu skildi Hafdís mig eftir eina með 3 GEITUNGUM.... ég hringdi hálf skælandi í stóra bróa og lét hann koma og taka þá... svo þegar hafdís kom aftur bauð hún tveimur kvikindum í viðbót í heimsókn og hún fékk sko að drepa þá... ég fór í 10-11 og fjárfesti í hárspreyi til að spreyja þá fasta svo þeir geti ekki stungið mig... núna sit ég hérna í tölvunni með spreybrúsann við hendina til að vera nú við öllu búin ef eitt kvikindið enn skildi láta sjá sig!!!

Ég held að ég geti bara útilokað það strax að ég verði nokkurn tíman meindýraeyðir.. hehehe Frændi hans jóa er meindýaeyðir... og hann var á ættarmótinu sem við vorum á um síðustu helgi... þá var annar lítill frændi hans þarna líka og hann var spurður að því hvort hann vissi hvaða kall þetta væri... hann hélt það nú og sagði : Þetta er spreyjumaðurinn!! og það grenjuðu allir úr hlátri... semsagt nýjasta heitið yfir meindýraeyði er spreyjumaður... þyrfti að koma þessu inní nýjustu orðabækur..

þar sem ég er að deyja úr leiðindum og hef ekkert að  gera í vinnunni að þá grunar mig að þessi færsla verði svoldið löng og um allt og ekkert þannig þið eruð hetjur ef þið náið að lesa þetta í gegn.....

Í gegnum tíðina þá hef ég verið frekar óheppin manneskja..... alltaf að meiða mig eitthvað

ég man ennþá eftir því þegar ég var bara rétt milli 1-2 ára þá var ég að fara að borða súpu og mamma setti hana uppí glugga til að kæla hana fyrir mig... nema ég ákvað að skoða hana aðeins og gríp um diskinn og hvolfi honum yfir mig og skaðbrenndi mig alla... afi kom hlaupandi og stökk með mig ofan í baðkarið.. hann í öllum fötunum til að kæla hendina... þetta endaði svo með annars stigs bruna og sjúkrahúsferð... og það er alveg mesta furða að ég fékk eiginlega ekkert ör eftir þetta... rétt sérð ummerki um þetta ef þú skoðar vel....

ætli ég hafi ekki verið svona ca 4 ára þegar næsta svona alvarlega óhapp varð... þá má segja að ég hafi fengið mínar fyrstu blæðingar.... ég ákvað að prufa hjólið hennar Ingu frænku sem bragi var með í láni... það var nú frekar stórt fyrir svona litla stelpu eins og mig... og ég datt og lenti beint ofan á einhverju dóti sem var til þess að festa reiðhjólapumpuna á hjólið og þið getið ímyndað ykkur afganginn... júbb viti menn þetta endaði auðvitað þannig að afi kom og fór með mig uppá spítala...

5 ára fékk ég ofnæmi fyrir öllu!! sem varð til þess að bragi varð að losa sig við páfagaukana sína... því ég mátti ekki vera nálægt þeim án þess að verða vitlaus... þannig öll dýr voru úr sögunni, ég fékk ofnæmi fyrir þvottaefnum, litarefnum, húsinu okkar og bara nefndu það... það er nú að eldast af mér og ég fæ svona eitt kast á ári nú orðið....

svo í grunnskóla þá hélt óheppnin áfram
*var að hlaupa yfir fótboltavöllinn fékk boltann svo fast í höfuðið að ég steinlá og fékk stóra kúlu
* datt niður stigann í skólanum og tognaði í öxlinni
* var í fótbolta... og það var sparkað í litla puttann minn og þar blæddi inná liðinn og hann er allur bæklaður í dag
* var í körfubolta í leikfimi og það slökkti einhver ljósin og á meðan skoppaði bolti í hinn litla puttann minn og braut hann svona rækilega að ég eyddi heilum degi á spítalanum uppdópuð á meðan það var verið að pússla mér saman
* fékk teyjubyssuskot í augað... rispaði étthvað í auganu... enn ein spítalaferðin og svo var ég höfð til sýnis í skólanum svo að allir fengju nú að sjá afleiðingarnar af teygjubyssunum og skólastjórinn fékk held ég inná borð til sín einhverja tugi af byssum og skotum
* var í langstökki og lenti eitthvað vitlaust og eyðilagði á mér bakið

unglingsárin:
* við stella vorum bustaðar í fermingarferðalaginu á löngumýri í skagafirði... við ætluðum að stelast yfir til strákanna og ég var komin út um gluggann og var að bíða eftir henni þegar presturinn kemur inn og spyr hana hvar ég sé... og hún lýgur uppí opið geðið á honum að ég hefði farið á klósettið þegar ég rek inn hausinn innum gluggann og spyr hvort að hún sé ekki að koma

* var bustuð í 10 bekk fyrir að vera með áfengi inná diskói :) það var hringt í alla foreldrana og mínir voru ekki beint ánægðir með litlu stelpuna þar sem ég hafði alltaf verið svo lítil og saklaus að þeirra mati... en það er ýmislegt sem þau vita ekki

* fékk alveg ægilegt ofnæmiskast í bekkjarferðalaginu mínu til færeyja í 10 bekk.. eyddi síðustu dögunum  uppdópuð og sofandi

*rústaði í mér báðum hnjánum með einhverju íþróttarugli jább íþróttir eru bara til þess að slasa sig í þeim....

En eftir að ég flutti að heimann þá fór þetta batnandi... tók þetta samt í köstum...

kom alveg fyrir einhverja mánuði að Bragi náði í mig uppá spítala nánast einu sinni í mánuði.... ég festi á mér bæði hnéin og gat ekki gengið, ég rifbeinsbrotnaði, tognaði illa eftir eitthvað djammið og bara nefndu það....
fyrir utan endalausar blóðprufur, magaspeglanir, hálskirtlaaðgerð

svo held ég að ég hafi tekið út skammtinn af óheppni á einum degi... byrjaði á því að henda niður hillu í vinnunni... hljóp svo á vegg í hádeginu þegar ég var að flýta mér í mat... skar mig svo á ostaskeraranum í kvöldmatnum.. flaug á hausinn á leiðinni út í bíl... og hljóp svo á sápubox í sturtuklefanum í jarðböðunum í mývantssveit og fékk stærsta marblett í heimi... jább allt á einum degi og síðan þá hef ég ekkert slasað mig nema í húsbyggingunni í fyrra þegar ég lamdi mig í hausinn með kúbeini... jább það er ekki gott að vera að losa nagla með kúbeini og beygja sig svo fram til að sjá betur og skutla kúbeininu beint í hausinn á manni....  enda hefur mér verið skipað að láta kúbeinið í friði eftir þetta....

jæja þetta er orðið ágætt ég gæti haldi endalaust áfram... það eru örugglega svona 1000 atriði sem, ég er að gleyma og ég held að það sé ekki pláss fyrir þetta allt saman hérna inni... well þetta er viku lesning þannig ég get tekið mér góða blogg pásu næstu daga á meðan þið eruð að komast í gegnum eþtta :)

kv. ungfrú óheppin

» 10 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 10:30:47 / Elva

Hún á Afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Elva

Hún á afmæli í dag :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 17:46:23 / Elva

Ég er að deyja úr leiðindum.......

jæja... ég hef nú ekki frá miklu að segja frekar en fyrri daginn..... ég er í vinnunni... ákvað að taka kvöldvaktina þennan daginn sem þýðir það að ég þarf að vera hérna til kl 22 í kvöld og tíminn líður ekki neitt og það er nánast ekkert að gera hjá mér.... og þá líður tíminn bara ennþá hægar....

en allavega...... þá er ég búin að skoða allar þær bloggsíður sem ég er vön að skoða á hverjum degi og eitthvað meira til..... ég horfði á raunveruleikaþáttinn í rockstar sem verður sýndur á skjáeinum á morgun.... sniðugt þetta internet... ég náði mér í nýja hringingu í símann minn.... og er að spá í að skella mér inná brúðkaupsvefinn og skoða eitthvað sniðugt þar og sjá hvort ég fái ekki einhverjar góðar hugmyndir....

Það er komin ný dagsetning á stóra daginn... hættum við verslunarmannahelgina næstu og stefnum á 23 júní 2007 í staðinn... það er jónsmessuhelgin... og kannski möguleiki á að sem flestir komist þá :)
Það er bara svo mikið sem þarf að gera.... panta kirkjuna, salin, spá í hvaða veitingar verða í boði... svo er það fötin og bara alveg endalaust sem þarf að gera... þannig það er gott að byrja bara að undirbúa þetta strax....
Svo er ég búin að pæla mikið í því hvort ég eigi að kaupa brúðarkjólinn eða bara leigja hann?? það munar ekki svo miklu í verði allavega það sem ég er búin að skoða...  já mikið að hugsa um þessa dagana.....

Ég lét krúttlega bleika símann minn frá mér áðan ;( *hágrát* hann var búinn að vera eitthvað lasinn greyið og búinn að fara svo mörum sinnum til læknisins að hann bara þoldi ekki fleiri ferðir til læknisins... þannig ég gaf hann uppá bátinn fyrir 10 þúsund uppí nýjan síma..... og var skrímslið bróðir hans fyrir valinu og 20 þús sem ég þurfti að borga í milli!! já svona lætur maður plata sig endalaust... ég á semsagt nýjan ógeðlsega cool síma með geggjaðri myndavél og mp3 spilara og einhverju drasli sem ég a aldrei eftir að nota.... :) en pinky verður sárt saknað :(

Mig langaði nú samt í annan samlokusíma.... en sony símarnir voru með svo ógeðslegum tökkum að mig langaði ekki í þá... nennti ekki að læra á samsung... og nokia er alltaf bilað þannig ég varð bara að bíta  í það súra að ég fengi ekki samlokusíma að þessu sinni

Það fer alveg að líða að því að maður skreppi í borg óttans einhverja helgina á næstunni... það þarf að fara að fjárfesta í fronti á eldhúsinnréttinguna svo við getum sett húsið á sölu...  jámm þannig er nú það...

ég hef nú ekki frá miklu meiru að segja nema jú það ÉG Á AFMÆLI Á MORGUN!! veit ekki hvað tilvonandi eiginmaðurinn er búinn að plana fyrir morgundaginn... en það er aldrei að vita nema ég verði bara heima hjá mér og þá er ykkur velkomið að kíkka í heimsókn... gott að hringja bara á undan sér til að vera alveg viss um að ég sé heima :)

Þá læt ég þetta bara duga í bili... þangað til næst...

Elvan

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15