Halló gott fólk..... það eru alveg efasemdir um það hvort ég sé
lifandi eða ekki!! Ég er búin að vera lasin og með óráði síðan á
sunnudagsnóttina! Fékk einhverja helvítis ælupesti það ætti að
banna þetta! Ég er með strengi útum allt og illt allstaðar og ekki
búin að borða neitt í 3 daga og það sem ég hef reynt að borða
skilar sér strax aftur! HEPPIN! ég þarf allavega ekki að hafa
áhyggjur af því að fara í megrun eftir jólin því jólabumban er
alveg farin.. HEPPIN

en ég vona svo innilega að þið þurfið ekki
að ganga í gegnum þetta! En annars er bara ekkkert að frétta....
skólaárið byrjar vel... byrja á því að missa nokkra daga úr
skólanum það verður gaman að vinna það upp.. ég bara hef mig ekki í
það að byrja! Þannig ef einhjverjum leiðist þá má hann/hún alveg
koma og læra fyrir mig ég skal hlusta

Ég er búin að vera allt of
löt við að blogga.... hef bara einhvernveginn ekkert að segja þessa
dagana... það er allt eins... fer í skólann eða ekki....... fer í
vinnuna og svo hangi ég bara heima og geri ekki neitt.... nei nei
ég breytti nú aðeins til síðustu helgi.... við fórum skötuhjúin
saman á kaffi ak á föstudagskvöldið að hlusta á einhverja
hljómsveit og svo þegar hún var búin að ljúka sér af fórum við á
dátann en það var ekki líft þar inni því það var verið að lakka
gólfin þannig við fórum á kaffi amor og sátum þar í smá stund og
fórum svo bara heim rosa kósý eikkað.... laugardagurinn byrjaði í
leti en svo fórum við í heimsókn til gumma um kvöldið... var ekki
búin að hitta hann geðveikt lengi svo fórum við til súsönnu að
spila Trivial og Jói vann með geðveikri heppni.... ég varð í öðru
sæti...

en ég bætti þetta upp í kananum þar sem ég rústaði
þeim!! Sunnudagurinn var svona dekurdagur fyrir mig! Dagurinn var
yndislegur.... fórum í ljós og svo í sund og svo út að borða og svo
a´videoleigu en eftir fyrstu myndina byrjúðu ósköpin.... það þurfti
að refsa mér fyrir að eiga einn góðan dag í langan tíma og ég er
enn að gjalda fyrir þetta! Svo langar ykkur ekkert að vita um
smáatriði síðustu daga! Jæja segjum þetta gott í bili... búin að
vera ofsalega dugleg... ætla að fara aftur uppí rúm og deyja! TATA