DRAMA QUEEN

Ef þetta tekst ekki í fyrstu tilraun þá er þetta ekki hægt!

07.02.2005 13:14:27 / Elva

Og það gerist aftur :)

Kraftaverk gerast enn.... það eru ekkert svo margir dagar síðan ég bloggaði síðast! Allar þessar íbúðir sem ég var að tala um síðast...... well við fórum að skoða og það var alltaf eitthvað mikið að þannig að það varð að útiloka þá íbúð! Hver gengur í gegnum baðherbergið hjá sér til að komast inn í svefnherbergi???? gaman að vera inní herbergi innilokaður á meðan einhver er að gera stykkin sín á klósettinu....... skemmdi gersamlega allt! svo voru þetta allt frekar gamlar íbúðir sem við vorum að skoða og þær voru  bara ekkert í nógu góðu ástandi fyrir þennan pening sem var sett á þær.....

Staðan er þá orðin þannig að við skötuhjúin ætlum að byggja okkur einbýlishús á Hrafnagili ef að við fáum lóð! Kostar svipað og þá er þetta eins og við viljum hafa þetta nákvæmlega.... ekkert að byrja á einhverjum breytingum.... algjör snilld... get ekki beðið... en það er ekki hægt að byrja á þessu fyrr en í fyrsta lagi maí! Of langt þannig að ef einhver veit um ÓDÝRA íbúð til leigu frá og með 1. mars í einhverja mánuði þá má hann endilega láta mig vita! Get ekki búið inná bróður mínum endalaust... endar þannig að við drepum hvort annað við erum búin að búa svo lengi saman reyndar með hléum :) en jæja ég er með svona massa sinaskeiðabólgu í hendinni þannig það er ekkert rosalega gott að pikka þannig ég læt þetta duga í bili og ég bið bara að heilsa... over and out!


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 16:55:51 / Elva

Kraftaverk gerast :)

Ég ætla bara að biðjast innilega afsökunar á því hvað ég er búin að vera löt við að blogga.... og sorry Ívar minn ég veit að þú ert tryggur aðdáandi þannig ég skal reyna að vera dugleg bara fyrir þig.... maður er nú að reyna að vera duglegur í skólanum og þá er ekkert hægt að sitja bara fyrir framan tölvuna og blogga allan daginn..... en hvar á ég að byrja... hvað hefur gerst síðan 19 jan 8| well ég ætla að byrja bara á síðustu helgi.... þá fór ég á þorrablót í sveitinni..... það var bara mjög fínt nema það byrjaði ekki vel... ég var eitthvað að gellast áður en ég fór og var að slétta á mér hárið.... var að flýta mér aðeins of mikið og rak helv.... sléttujárnið í ennið á mér og BRENNDI mig! gaman það.... Ég þurfti að vera með klaka á enninu á mér í marga klukkutíma mig sveið svo mikið og svo er ég með sætt brunasár á enninu.... HEPPIN. hvers á ég að gjalda... Ég stend sko alveg undir nafni klaufabárður ársins..... þetta á örugglega ekkert eftir að skána.... já ég veit mér finnst svoldið gaman að gera punkta..... þeir gefa lífinu lit :D en allavega þá er lífið mitt alltaf eins... fer í skólann á morgnana eða ekki..... finnst svoldið gott að sofa... og svo í vinnuna eða ligg fyrir framan sjónvarpið þau kvöld sem ég er ekki að vinna.... sannkölluð couch potato! En góðu fréttirnar eru þær að nú er eitthvað farið að gerast í íbúðarmálum hjá mér.... Fórum og skoðuðum eina íbúð í gær en þetta var ógeðsleg íbúð.... aumingja guttinn sem keypti hana og er að reyna að selja hana.... þetta verður eins og HIV hann losnar aldrei við hana... í fyrsta lagi er ógeðslegur stigi þarna sem er uppí herbergið á efri hæðinni.... ég átti mjög erfitt að komast upp og niður hann var það brattur.... plús það að gatið sem maður þurfti að fara í gegnum var svo lítið að maður þurfti að skríða hálfpartinn inní herbergið og good luck að koma rúmi þarna inn nema þú fáir það í öreindum og púslir því saman..... bara um leið og ég sá þetta þá var þessi hugmynd einhverstaðar vel týnd í heilabúinu,..... en maður má ekki gefast upp... Við erum að fara að skoða þrjár íbúðir í kvöld og eina á morgun... þannig það verður nóg að gera.... vonandi eru þessar bara betri en þessi sem ég skoðaði í gær..... jæja klukkan orðin allt of margt... Ég ætla að reyna að skoða ógeðis stærðfræðibókina mína aðeins áður en Guiding byrjar!  Ef einhver er góður í stæ 603 þá má sá sami alveg bjóða fram aðstoð sína... ekki veitir af.... en ég er svoleiðis að Brillera í stæ 503 ég vissi ekki að ég væri svona mikið gáfnaljós.... :D hey maður má alveg hafa smá egó :)  En svona ef ég á að fara að röfla um skólann þá er ég búin að eignast nýtt gæludýr í skólanum.... jább og það gæludýr er Baktería :) ég er semsagt í örverufræði í skólanum og við erum að rækta bakteríur... þannig ég myndi ekki gera mér neitt eða ég tek ógeðisbakteríurnar sem eru á hönunum á okkur þegar við komum af klósettinu og set þær í matinn ykkar.... :) nei ég segi bara svona... þær eru samt ekkert girnilegar..... og það besta við það að þær fara sko alls ekkert allar þó að við þvoum okkur.... well þetta var speki dagsins og ég ætla að hætta þessu rugli enda komið gott.... Ég gef svo skýrslu um hinar íbúðirnar fljótlega :) Over and Out....... elska ykkur öll TATA já og allt það.... er að missa mig!


» 0 hafa sagt sína skoðun