en allavega... Góðan daginn.. núna er ég stödd á vinnustað mínum
þar sem ég fæ að dúsa fram undir miðnætti í kvöld takk fyrir
kærlega... það eru nánast allir starfsmenn nætursölunnar í
prófum þessa dagana og það bitnar allt á mér gáfnaljósinu sem er
búin með þennan helv... framhaldsskóla!!! Ég semsagt mætti í
vinnuna í hádeginu og verð hér fram að lokun... geri aðrir betur
Það er bara ekkert spennandi búið að gerast hjá mér síðan síðast...
fer bara í vinnuna og heim... og horfi á sjónvarpið... má ekki
gleyma því... sjónvarpið er besti vinur minn þessa dagana... ég
held að ég ætti að setja starfsheitið letihaugur í símaskránna

það er bara eitthvað svo gott þessa dagana að kúra uppí rúmi og
horfa á sjónvarpið á kvöldin... held að sveitalífið sé alveg búið
að ná tökum á mér... ég bara nenni ekki að vera að keyra í bæinn
aftur til þess að fara eh í heimsókn eða á kaffihús eða eh.... en
ykkur er meira en velkomið að kíkka í heimsókn til mín í
sveitasæluna... bara gott að hringja á undan sér ef svo ólíklega
vildi til að ég væri búin að plana eh annað
Þegar ég fór í vinnuna í morgun var þvílíka sólin og blíðan í
sveitinni þannig mín tók fram sumarskóna og fór bara út á peysunni
því það var vel heitt úti... en nei leið og ég kem á Akureyri er
bara alskýjað og hálf rigningarlegt og svo bara allt í einu komið
ógeðslegt veður... skítakuldi og eitt og eitt snjókorn.... bjakk ég
sem hélt að sumarið væri að koma
en úr einu í annað.... það eru komnar hurðar á öll herbergi heima
hjá mér og það bara breytti íbúðinni heilan helling

Það er
svo búið að klæða uppí loftið í herberginu hennar
Heiðdísar, öllum ganginum, eldhúsinu, stofunni ( fyrir utan
smá bút) og í forstofunni.. þannig þetta er bara allt saman að
koma... bara 3 herbergi eftir og þá er þetta búið... Þá eru það
bara gólfefnin og hurðarnar á eldhúsinnréttinguna þá er húsið mitt
tilbúið

Það er svona passlegt að fara að byrja á hinu
húsinu

Jói er búinn að vera að dunda sér að teikna það upp... er
búinn að gera nokkur uppköst... sam t það flottasta sem hann gerði
var 252 fm hús... er það er kannski aðeins of stórt fyrir okkur
tvö... þannig að ég held að endanleg teikning sé komin í 220 fm...
samt risastórt

en mjög flott engu að síður

enda þýðir ekkert
að bjóða svona prinsessu eins og mér uppá einhvern kofa... nei smá
djók
Það eru bara 57 dagar þangað til ég fer til köbern

ekki
leiðinlegt það... get sko ekki beðið! ég ætla sko að fara í
tívolíið og taka alveg heilan dag í það... ég ætla ekki að fara í
gegnum það á hlaupum eins og síðast... náði ekki að fara í næstum
því öll tækin... ætla sko að bæta úr því núna... nema ég ætla EKKI
að fara í turninn þar sem maður fer endalaust hátt uppí loftið og
dettur svo niður... getum bara gleymt þeirri hugmynd strax..... en
ég ætla að vera hetja og prufa allt hitt
jæja ég nenni ekki meir... ég ætla að fara og reyna að gera eh í
vinnunni... byrja á kvöldverkunum svo ég geti verið löt í kvöld

bið bara að heilsa ykkur þangað til næst
kveðja Ég