DRAMA QUEEN

Ef þetta tekst ekki í fyrstu tilraun þá er þetta ekki hægt!

30.06.2006 15:21:50 / Elva

Ofurdugleg

Halló Halló.....

Ég bara verð að segja ykkur frá því hvað ég var dugleg í gær..... ég fór út að hlaupa!! já þið lásuð rétt... ég hreyfði m ig heheh :)
Ég er búin að tala um þetta í marga mánuði að nú þurfi ég sko að fara að hreyfa mig eitthvað en ósjálfstæðið er að fara með mig... ég á rosalega erfitt með að gera svona hluti ein og jói nennir sko ekki að fara með mér út að hlaupa né labba á kvöldin þannig ég lét loksins verða að því að ég fjárfesti í MP3 spilara í flugvélinni á leiðinni heim til að stytta mér stundirnar við hreyfinguna....

Ég fór til Dóru og Sæla í gær og stal mér alveg heilum helling af lögum í spilarann og þá var ég klár í slaginn... Ég tók hundinn með mér í gær og henni fannst þetta æði að fá að hlaupa eins og geðsjúklingur...ég komst að því að þolið mitt er EKKI NEITT gat bara hlaupið smá og smá í einu og labbaði svo bara á milli :) hundurinn var svo góður við mig að stökkva útí mýri þannig hún varð rauð á litinn þannig ég þurfti að fara með hana í ána í bað :) þetta er í fyrsta skiptið sem hún fer útí svona á og það tók sko ágætistíma að fá hana til þess að fara útí... algjör skræfa... en ég fór örugglega ekki meira en 5 km en mér fannst það nú alveg nóg svona til að byrja með... Ég ætla að fara á eftir og fjárfesta í góðum hlaupaskóm til að geta haldið áfram því skórnir sem ég á eru ekki nógu góðir í svona.....

Annars er eg að spá í að fá mér aðeins í glas í kvöld og gera eitthvað skemmtilegt því ég er að vinna næstu nótt í nætursölunni... ætla að skella einhverju góðu á grillið og hafa gaman :) Hafið þið það gott um helgina elskurnar og farið vel með ykkur :)

kv.
Hlaupadýrið :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 10:28:52 / Elva

Jæja komin heim....

Halló halló gott fólk... mín er mætt á klakann aftur... þetta voru yndislegir dagar í köben... bara gaman.. veit ekki alveg hvar ég á að byrja...

Við gistum á svona skóla kollegi hjá Hildi frænku sem var bara alveg ljómandi.... við vorum komin til hennar rétt fyrir 4 á fimmtudagsnóttina... að staðartíma... rétt að verða tvö á íslenskum en .það var sko kominn háttatími :) á föstudaginn hvíldum við okkur vel þangað til hildur var búin að vinna þá fórum við eitthvað á röltið og enduðum í fylliríi á nyhavn en þar var verið að brenna einhvern spýtukarl sem átti víst að vera norn... einhver skrítinn siður hjá dönum að halda nornabrennu einu sinni á ári :) þegar það var búið fórum við aftur á kollegiið og héldum áfram að sulla þar á barnum.... leikurinn steinn, blað skæri var mjög vinsæll þetta kvöld og var fólk manað upp í alls kyns vitleysu en sem betur fer þá slapp ég alltaf.... er svo góð í þessum leik... ehehehehe

Laugardagurinn: við vöknuðum frekar seint en samt ekki... ég réttlætti þetta með því að breyta í íslenskan tíma þannig ég vaknaði í rauninni tveimur tímum fyrr en klukkan sagði :) Við skelltum okkur á veitingastað og fengum okkur að borða... og litli gikkurinn ég ætlaði að fá mér samloku með skinku og osti með smá grænmeti..... en þetta var ekki alveg eins og ég var að vonast eftir því osturinn var eins og smjör í einhverjum kúlum sem ég hafði ekki list á í þynnkunni og svo var þetta löðrandi í einhverri mæjónessósu sem mér finnst ekki góð... þannig ég borðaði gúrkur og papriku í morgunmatinn :) hin fengu öll vondann hamborgara þannig þau hefðu betur átt að hlusta á mig og fara bara á subway ;) eftir matinn var haldið í TIVOLI.... shit hvað það var gaman......

komum inn í tivolið og skelltum okkur að sjálfsögðu beint í tækin.... byrjuðum á því að fara í drekann svona rétt til að hita upp... og við völdum sko alveg versta tækið til þess að hita upp í :) snérist í hringi á geðveikum hraða og snéri okkur svo á hvolf og allavega í þessari körfu sem við vorum í.... skræfan ég lokaði bara augunum og beið eftir að þetta væri búið... en þetta var nú samt mjög gaman.... svo gerðist ótrúlegasti hluturinn.... af einhverjum ástæðum sagði ég já við því að fara í gullna turninn sem ég var búin að lofa sjálfri mér að fara ALDREI í..... þar sem ég get varla staðið uppá stól sökum lofthræðslu en nei.... þarna var ég komin í 62 metra uppí loftið og mér var ekki alveg sama.... svo bara allt í einu dettur maður bara niður og þá hélt ég að þetta væri bara gjörsamlega mitt síðasta.... ég rýghélt mér í handfönginn rétt fyrst sleppti svo og greip fyrir augun á mér og öskraði eins og mofo.... hildur hin rólegasta við hliðina á mér... gjörsamlega að deyja úr hlátri.... Jói skræfa og Markús stóðu beint fyrir neðan okkur og þeir veltust um eins og pínulitlir ormar úr hlátri sem mér fannst sko ekki fyndið... höfðu  ekki efni á því að vera að hlægja að  mér þegar þeir þorðu ekki sjálfir... ég skalf svo eins og hrísla  í einhverjar mínútur þegar ég kom loksins niður.... og þá var hlegið ennþá meira og ég ætla bara að segja ykkur það að þetta geri ég ALDREI aftur... ein ferð var nóg f yrir mig.....

Næst á eftir var farið í djöfulinn sem er alveg geðveikur rússibani.... mér leist nú ekkert á það að vera að fara eitthvað á hvolf í honum en þetta var svo bara miklu skárra en ég var búin að ímynda mér... ég hafði samt lokuð augun alla fyrstu ferðina :) en ég fór tvisvar í viðbót og var með augun opin og hefði getað farið margar ferðir í viðbót... svo tókum við þessu bara rólega og fórum í litlu rússibanana sem voru náttla ekki neitt neitt miðað við djöfulinn...

fórum á Hard Rock og fengum okkur að borða... þar var starfsfólkið látið dansa við greese lag uppá barnum... okkur fannst það fyndið.. ég myndi aldrei fyrir mitt litla líf láta niðurlægja mig svona í vinnunni!! en maturinn var bara snilld.... besta kjúllasamloka sem ég hef smakkað á ævinni... nammi namm... héldum svo árfam og fórum í nokkur tæki í viðbót en jói var búin að segja pass þannig ég og hildur héldum áfram eins og litlir krakkar á meðan jói og Markús fóru og fundu sér tölvuspil og bjór... á þessum tímapunkti fengu allir hlutir orðið tæki fyrir aftan sig... strákarnir fóru mjög oft í bjórtækið og það var uppáhaldstækið þeirra....  svo var það glasatækið... þar sem þeir skiluðu bjórglösunum... og matartækið og í hverri einustu setningu var þessu orðið troðið einhverstaðar inní :) Við vorum komin úr tivoliinu rétt fyrir miðnætti og fórum þá í smá partí... þar sem sömu vitleysingarnir frá kvöldinu áður voru farin að mana hvort annað upp í alls konar vitleysu eins og að sleikja fæturna á hvoru öðru og velta sér eftir skítugum ganginum og eitthvað fleira... þar sem við vorum bæði edrú þá sögðum við pass við þessari vitleysu og fórum snemma í háttinn...

Sunnudagurinn: sváfum frameftir... það er svo gott að sofa... fórum svo á fætur og það var þetta ljómandi veður úti og gjörsamlega steikjandi hiti... fórum og keyptum okkur pizzur og fórum í einhvern garð til að borða þær... lágum aðeins í sólbaði... fékk samt engan lit... svo komu Bjössi og Þórunn og þau voru með kubb með sér... þannig við lögðum undir okkur hálfan garðinn og fórum að spila kubb... strákar a móti stelpum.... strákarnir unnu okkur :( en við höfðum betur í upphafi en það var ekki lengi að snúast við :) en samt mjög gaman... þegar þeir vour búnir að vinna okkur stelpurnar fannst okkur þetta spil ekkert skemmtilegt lengur og við fórum því að túristast aðeins... vorum dregin í svona duggudugg og fengum túr um köben... tókum svo göngutúr upp strikið eftir bátsferðina og fengum okkur að borða og hvað annað en pizzur urðu f yrir valinu.... þá var búið að borða pizzu bæði í hádegismat og kvöldmat... við tókum því svo bara rólega á sunnudagskvöldinu og horfðum á video :)

mánudagur= VERSLUNARLEIÐANGUR
fórum í fisketorvet að versla... og við byrjuðum á því að fá okkur að borða... og hvað haldiði að hafi orðið fyrir valinu.... pizza á pizza hut....... jebb enn einn pizzan.... þegar við vorum búin að borða var farið í íþróttavörubúð og keyptir takkaskór á jóa og stuttbuxur... ég fann mér einar íþróttabuxur líka :) þá var jói búinn að versla það sem hann ætlaði að versla og var honum og markúsi plantað í eitt bjórtækið og þar voru pokabækistöðvar... svo fór ég bara og verslaði og þeir sáu um að geyma pokana :) þeir voru mjög fegnir að þurfa ekki að dröslast með mér úr búð í búð.... hehe... ég keypti tvennar ONLY buxur og tvenna ONLY boli... verð að segja að only er uppáhaldsbúðin mín í agnablikinu... fór líka í H&M og keypti mér ermar.... keypti svo tvær blend peysur... ofsalega dugleg... þetta tók nú samt bara klukkutíma... þegar ég kom til baka í bækistöðvarnar var Hildur mætt á svæðið og við komum okkur út... þá fékk hildur þá snilldar hugmynd að fara í annað moll og strákarnir sögðu pass við því og voru því sendir heim með alla pokana til að ég gæti farið með hildi og haldið áfram að versla.... í hinu mollinu fór ég inn í geðveika skóbúð... skórnir voru nánast gefins... ég keypti 3 pör á innan við 5 þús kall... jább... ég keypti bara þrjú pör... hefði sko nánast getað tekið eitt af hverju en Hildur stoppaði mig af þegar hún sá í hvað þetta stefndi... kíkkaði líka aðeins í Top shop og keypti þrjá boli þar í viðbót... einn sem hét því skemmtilega nafni boob  tube :) og posakerfið hjá dönum var eitthvað bilað þennan daginn þannig vísakortið mitt var straujað með sleða eins og í gamla daga... frekar fyndið :)  já... þá er það upptalið það sem ég verslaði :) já fyrir utan ferðadvd spilarann og mp3 spilarann sem ég keypti í flugvélinni :) í kvöldmatinn þá fengu strákarnir sér að sjálfsögðu pizzu... þannig það var búið að borða pizzu í öll mál í tvo daga en ég fékk mér kjúklingapítu sem var bara mjög góð...... svo um kvöldið fórum við  á kollegibarinn og sátum þar fram að miðnætti og fórum svo bara í háttinn...

Í gær gerðum við ekki neitt... sváfum fram að hádegi... fórum svo á pósthúsið með Markúsi... fórum svo á kollegið og fengum okkur að borða og hvað haldiði að hafi verið í matinn... jú að sjálfsögðu pizza enn einn daginn :) svo var bara allt í einu kominn tími til að fara útá flugvöll.... við vorum með þeim fyrstu til að tékka okkur inn en við fórum í vitlausa röð í security tékkið... ss lengri röðina og við vorum í henni í 40 mínútur... þannig ég rétt naði að hlaupa í taxfree básinn og fá endurgreitt og eyða klinkinu í nammibúðinni...... og fá mér eina sigó og þá þurfti ég að fara uppí vél og við vorum með þeim síðustu inn í vélina :) Þessar flugvélar sem eru notaðar í þetta beina flug frá akureyri eru bara einhverjar leiguvélar... það var því ekkert íslenskt að borða í fluginu á leiðinni heim því flugvélin hafði komið frá sviss...það voru því svissneskar samlokur í boði... ég fékk mér samloku með skinku og osti og hún var nú alveg ágætt nema brauðið var eins og ein stór saltstöng... það var þannig bragð af því.... það tók flugfreyjurnar tvo tíma að gefa öllum að borða sem mér finnst frekar langur tími... það voru semsagt tveir tímar þegar þær mættust í miðjunni.... ég var búin að ýta á takkann og beið í örugglega klukkutíma eftir því að helv... gamla gerpið kom... hún var samt búin að labba framhjá mér svona 15 sinnum en hún gat ekki stoppað í tvær sek til að spurja hvað okkur vantaði.....við keyptum dvd spilara í fluginu á leiðinni út... sem stytti okkur stundirnar í fluginu á leiðinni út... en við gleymdum að kaupa okkur einhverja mynd til að horfa á á leiðinni til baka þannig við ætluðum bara að gera það á bakaleiðinni í flugvélinni... en nei þegar það var klukkutími eftir af fluginu þá kom gellan með úrvalið af dvd myndunum.... það voru sömu þrjár myndirnar sem voru í boði á leiðinni út.... the aviator, the pianist og ég man ekki hvað þriðja myndin var.... þannig ég fór bara í fýlu og fór að lesa harry potter á meðan jói þurfti að láta sér leiðast.....hann var farinn að kitla mig og pota í mig því honum leiddist svo og hannn róaðist ekki fyrr en ég skipti við hann um sæti og þá gat hann horft útum gluggann :)

við komum heim um 9 í gærkvöldi þá var farið í sjónvarpsgláp og nammiát... og núna er ég komin í vinnuna... þanig eru síðustu dagar ´´i mínu lífi búnir að vera... og þetta er alveg endalaust langur pistill og þið eigið heiður skilið ef þið hafið náð að lesa til enda... en ég ætla að láta þetta duga í bili... þangað til næst...

Elva


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 11:07:47 / Elva

Köben BABY

Halló halló....

stóra stundin runnin upp :) Við erum að fara til köben í kvöld með beinu flugi frá Akureyri.... get sko ekki beðið... Ég er búin að setja í endalaust margar þvottavélar síðustu daga þannig að öll fötin mín eru hrein nema þessi sem ég er í núna....(fór reyndar í þau hrein í morgun) en ég á ennþá eftir að pakka niður... ég bara meikaði ekki að gera það í nótt.... Ég ætti nú að hafa nógan tíma... ég ætla að hætta snemma í vinnunni í dag til þess að geta farið heim og pakkað niður í rólegheitunum. Það er svo mæting útá völl 10 mín í 8 og farið í loftið um 10 :)

Við lendum ekki úti fyrr en kl 3 um nóttina að staðartíma sem er smá mínus.. þannig maður fer bara beint í það að koma sér heim til Hildar og fara að sofa.... en við höfum nánast allan þriðjudaginn í staðinn.. flugið heim er ekki fyrr en hálf 8 um kvöldið

Ég ætla að vera alveg heilan dag í tívolínu og fara í öll tækin nema eitt.... skræfa dauðans... og ég ætla að gera þetta bara í rólegheitunum en ekki hlaupa á milli tækja til að ná sem flestum fyrir lokun:)

Þetta átti EKKI að verða verslunarferð... en ætli maður kíkki ekki samt eitthvað í búðir bara afþví að maður er í útlöndum og þá er skylda að eyða peningum í boði Visa ísland :)

Jæja stressið farið að magnast upp..... ætla að fara að gera eitthvað í vinnunni áður en ég verð alveg að fara úr límingunum af stressi..... flugvélar eru ekki alveg í uppáhaldi hjá mér.... spá í að skella ímig bara einni róandi áður en ég fer....

Bið að heilsa í bili og þið skemmtið ykkur bara fallega á klakanum á meðan ég ætla að mála bæinn rauðan í köben :)

KV. Ferðalangurinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 16:06:00 / Elva

orðlaus....

Hallú....ætli ég verði ekki að henda nokkrum orðum hérna inn... Ég er bara búin að vera frekar busy undanfarið og ekki haft tíma fyrir einhverja svona vitleysu.... og það hjálpar ekki til að vera ekki með almennilega nettengingu heima hjá sér... nenni varla að kveikja á tölvunni minni þolinmæðin er það mikil....

annars hefur bara ekkert gerst.... vinna, borða og sofa daginn út og daginn inn... ég skellti mér jú á smá djamm þarsíðustu helgi eins og ég var búin að segja ykkur...svo gerði ég aðra tilraun síðustu helgi... fékk mér aðeins á föstudagskvöldið náði samt aldrei að verða drukkin....kannski að pirringurinn minn hafi átt stóran hlut í máli þar... en allavega þá fórum við snemma heim en þá var einhver helvítis skríll á tjaldsvæðinu við skólann þannig að ég gat ekki sofnað fyrr en kl 6 því það bara nötraði allt í svefnherberginu mínu við þessa búmm búmm tónlist...sem mér finnst jú ágæt en var ekki alveg í skapi fyrir hana þarna.... þetta endaði þannig að það rann alveg af mér á meðan ég var að reyna að sofna... og fékk ég timburmennina í heimsókn áður en ég sofnaði og þeir fóru sko ekkert fyrr en seint illa og aldrei daginn eftir!!!!

17:júní..... ég lá í rúminu ALLAN daginn... var þreytt, var timbruð, var pirruð og bara nefndu það.... ég þurfti svo að hundskast fram úr rúminu kl 8 um kvöldið því þá var kofinn að fyllast af fólki sem var mætt í enn eina grillveisluna.. ég var nú ekkert alveg í skapi fyrir þetta allt saman en harkaði þetta af mér... ég fór svo að vinna í nætursölunni rétt uppúr miðnætti og það var geðbilað að gera... ég var komin heim til mín kl korter í 8 á sunnudagsmorguninn alveg búin á því.... en samt einhvernveginn gat ég ekki sofnað fyrr en að verða 9 í gærmorgun... vaknaði svo á klukkutíma fresti og svo endanlega eftir 4 tíma svefn þegar mamma og pabbi komu með stelpuna svo gerði ég nokkrar tilraunir enn til að halda áfram að sofa... þá var fótboltinn blastaður í botn og ekki til að bæta skapið mitt... þannig jói fékk skýr skilaboð um að hann skildi lækka í helv.... sjónvarpinu og ég náði loksins smá kríu rétt fyrir kvöldmat í gær....

þar sem við erum að tala um mestu svefnpurku í öllum geiminum þá getið þið rétt ímyndað ykkur pirringinn sem var í gangi í gær... ef ég fæ ekki minn svefn þá er ég geðveikt grumpy og nöldra útaf öllu og það má ekki gera neitt vitlaust... ég verð alveg stórhættuleg ef ég fæ ekki að sofa... og auðvitað þá er ég að deyja úr þreytu núna og ég ætla að liggja uppí rúmi í allt kvöld og horfa á sjónvarpið... búin að tilkynna jóa að fótboltinn verði EKKI á dagskránni í kvöld... ég ætla að fá eitt kvöld í friði fyrir þessum dómaraflautum og kliðinum í áhorfendunum áþessum leikjum!!!!

en að einhverju skemmtilegu... Ég er að fara til Köben á fimmtudaginn... get sko ekki beðið... verð fram á þriðjudag í næstu viku... Ég fer með beinu flugi frá Akureyri þannig það verður geðveikt næs að þurfa ekki að keyra suður fyrst til að fara í flug... já gleymdi ég að minnast á það að Jói fer auðvitað með mér.... Við ætlum að gista hjá Hildi frænku og svo hitta á Þórdísi líka og skella okkur í tívolí ef það verður gott veður... var að skoða veðurspá og það á að rigna föstudag og laugardag en sól á sunnudaginn þannig sunnudagurinn fer örugglega í tívolíferð :) annars hef ég ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera í danmörku...það kemur bara í ljós... ég ætla samt að reyna að versla eitthvað smá... við sárvantar buxur :)

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili... nöldra bara meira ef ég ætla að finna uppá einhverju meira að segja þannig ég er að spá í að sleppa því bara.....

þangað til einhverntímann

Elva Rut


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 10:17:48 / Elva

sofandi.is

Góðan daginn..... kominn tími til að segja nokkur orð :) Ég er í vinnunni núna... frekar vönkuð eitthvað.... fékk ofnæmiskast seint í gærkvöldi og skellti í mig ofnæmistöflu og um leið og hún fór að virka steinrotaðist ég.... þó að ég standi hérna vakandi þá er hausinn á mér steinsofandi ennþá.... geðveikt þungur og asnalegur eitthvað.... en.... ég verð vonandi vöknuð uppúr hádegi :)

Ég fór á djammið á laugardaginn.... fékk mér í glas.... hef ekki fengið mér í glas síðan um páskana þannig það var kominn tími til... við buðum fullt af fólki í grill og var sko étið á sig gat.... maður verður að nota þetta grill eitthvað víst maður var að kaupa það... ég skemmti mér bara konunglega... þetta var orðin fámenn en góðmenn samkoma í kringum miðnættið... þá var tónlistin blöstuð í botn og allir sungu hástöfum og svo var aðeins gripið í gítarinn líka..... svo skelltum við okkur í bæinn... fórum á kaffi ak og á amor... ekkert gaman á amor þannig ég fór aftur á kaffi ak og skemmti mér alveg ljómandi vel... var í góðum fíling á dansgólfinu... en svo kom Jói allt of snemma og dró mig heim því hann var búin  að redda fari heim.... ég var engan veginn að vilja fara heim en það var annaðhvort að koma strax eða eyða  3000 kalli í leigubíl hálftíma seinna... þar sem ég er svo mikill nískupúki þá ákvað ég að bíta í það súra epli og fara heim.....

Kom samt aðeins við í nætursölunni áður en ég fór heim til að fá mér að borða.... ég var búin að vera með þær yfirlýsingar nóttina áður að ég ætlaði bara rétt að fá mér 1-2 bjóra en ekkert að verða ofurölvi en það fór víst á annan veg... hmmmm ég kom þarna rúllandi inn með látum... skellti mér svo aðeins í heimsókn á bakvið og auðvitað með þvílíkum látum.. með þeim afleiðingum að ég henti niður einhverri tröppu og það munaði örfáum sentimetrum að trappan lenti á hausnum á Óðni....jebbs ég veit rosa brussa..... sem betur fer fór ég samt snemma heim því ég mætti í vinnuna í nætursölunni á sunnudagsmorguninn kl 11.... ennþá aðeins íðí... svo varð bara allt klikkað að gera þannig það rann af mér og ég hafði ekki tíma til þess að vera timbruð sem var mjög gott.....

er jafnvel að spá í að endurtaka leikinn núna næstu helgi.... er að spá í að skella mér bara aftur á djammið í tilefni 17 júní.... svo helgina eftir það þá verð ég í köben og fæ mér örugglega eitthvað þar.... svo get ég tekið góða pásu eftir það... eða fram að verslunarmannahelgi :)

Annars er bara ekkert að frétta.... fer bara í vinnuna og heim... er samt að spá í að finna mér eitthvað annað heimili þennan mánuðinn.... helvítis HM það er fótbolti í sjónvarpinu allan sólarhringinn... sem þýðir að ég fæ ekki að horfa á neitt sem mig langar til að horfa á.... en þar sem þessi blessaða keppni er bara á 4. ára fresti þá verð ég að láta undan :) annars hefði ég sko látið heyra í mér..... þá hef ég bara ekkert að gera heima hjá mér og get alveg eins verið einhverstaðar annarstaðar..... nema kannski yfir blánóttina... verð sko að fá að sofa í mínu eigin rúmi.....

Ég fór í klippingu í síðustu viku.... er komin með ekta 80's klippingu... með sítt að aftan... er svona að venjast þessu en þetta er bara alveg ágætt.... fer svo til Elvu minnar í kvöld að láta laga neglurnar mínar... þær eru orðnar frekar langar..... Það ríkir gott samkomulag á heimilinu um þessa hluti.... ég geri það sem mér sýnist... fer í klippingu, neglur, litun og plokkun og kaupi mér föt einu sinni í mánuði... og hann drekkur bjór í staðinn.... finnst hann frekar góður... hann segir ekki orð yfir því sem ég geri og ég segi oftast ekkert yfir bjórnum... :)

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti í vinnunni.... þýðir ekkert að hanga bara á netinu.... :)

skjáumst seinna....

mrs sleepyhead....


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 16:23:00 / Elva

It's alive... en með naumindum þó

Jæja jæja.... góðan daginn gott fólk.... kannski kominn tími á nokkurð orð hérna.... frekar langt síðan síðast... það er bara búið að vera allt crazy í vinnunni minni.... náðum loksins að opna búiðina á fimmtudaginn síðasta... öll sú vika fór í að klára að setja upp vörurnar og gera þessa skrilljón hluti sem voru eftir... og það eru bara milljón hlutir eftir núna en við náðum að opna... er búin að sitja í tvo daga nánast að skrá inn vörur sem voru ekki á skrá... voða gaman eitthgvað.... Í öllu þessu brjálæði er ég búin að vera fárveik með hita, kvef og hósta... en harkaði það bara af mér því ég hafði ekki þann munað að geta verið heima veik í friði....

Ég fékk annan starfsmanninn minn á föstudaginn... þannig ég gat leyft mér að vera í fríi í dag....  svo á morgun fer maður aftur í brjálæðið.....  þó að ég sé ekki búin að skrifa geðveikt lengi þá bara hef ég ekkert að segja... búið að vera pretty much fara í vinnuna svo beint uppí rúm að reyna að ná þessum flensuskít úr mér... þannig ég hef nú ekki frá neinu merkilegu að segja......

Við ætlum að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld svona til tilbreytingar... kíkkar kannski aðeins á kaffihús eða eitthvað í smástund... verð samt að fara snemma heim því það er vinna í fyrramálið.... Það var splæst í eitt stk gasgrill í gær af bestu gerð.... mín var búin að suða frekar  lengi... langaði svo í grillmat... þannig að minn heittelskaði var svo yndislegur að hann fór og keypti grillið í gær.... svo smíðaði hann handa mér þennan fína sólpall úr vörubrettum og spónarplötum... þannig að bráðabirgðasólpallur og gasgrill í góða veðrinu í gær var náttla bara algjör snilld! Ég át að sjálfsögðu yfir mig... og er held ég að gjalda fyrir það í dag... vaknaði í morgun gjörsamlega að drepast í maganum..... ekki alveg efst á óskalistanum þar sem ég var að vinna í nætursölunni í nótt og var búin að sofa frekar lítið... fæ mér smá feguðarblund á eftir....

það voru geðveikt margir á djamminu í gær... þó að stöðunum hafi verið lokað kl 03 í nótt þá lokuðum við ekkert fyrr en vanalega.... bara stanslaust að gera frá o3-05..... skil ekki hvernig fólk meikar þetta helgi eftir helgi... þetta er alltaf sama fólkið sem er á djamminu... og að vera að fara heim kl fimm hálf 6 á morgnana.. það er bara kraftaverk ef við jói endumst lengur en til 3 þá erum við buin að fá nóg og gott að koma sér bara heim að sofa....

Það bætist alltaf við gæludýraflóruna hjá mér.... nuna eru það þessar blessuðu húsflugur sem eru að gera mig geðveika.... þær elta mig alltaf inní rúm á kvöldin og fljúga svo alltaf inní eyrun á mér með reglulegu millibili... hélt ein fyrir mér vöku alla miðvikudagsnóttina... samt var ég hálf sofandi eitthvað og bara nennti engan veginn að fara og veiða hana.... svo á föstudagsnóttina þegar ég ætlaði að fara að sofa... ég gerði heiðarlega tilraun til þess að veiða hana en hún faldi sig alltaf um leið og ég settist upp og fór að leita að henni... á endanum þá gafst ég upp og reif jóa greyið uppúr rúminu og sendi hann á fluguveiðar......eftir nokkrar tilraunir og nokkur ´hlátursköst náði hann þó flugunni og ég gat sofnað róleg.... en þetta var samt geðveikt fyndið.... hann geðveikt úldinn að elta einhverja flugu.... greyp útí loftið og greyp í tómt og svo aftur og aftur.... vá það er ekki hægt að lýsa þessu með orðum... had to be there... en mér fannst þetta alveg endalaust fyndið... já það þarf lítið til að gleðja mitt litla hjarta......

Gleymdi að minnast á það að í tilefni að grillið var keypt þá buðum við í þessa þvílíku grillveislu... alltaf með fjölda fólks í mat... Bjarni og Halla tengdó komu og dóttir hennar Höllu, Sindri, Birna og Tanja komu líka og Bjarni litli bróðir hans jóa... svo fékk hundurinn líka leikfélaga... þannig það var heldur betur fjör á heimilinu í gær....

Jæja búin að vaða úr einu í annað eins og vanalega.... ég skal lofa að vera dulegri að skrifa núna þegar það fer að hægjast um hjá mér..... svo fer bara alveg að styttast í danmerkurferðina mína.... sjibbí.... Hildur frænka kom í óvænta heimsókn um helgina.... Gaman að sjá þig skvísa við sjáumst svo næstí danaveldinu mjög fljótlega....

en allavega ´þá er þetta komið gott og ég ætla að taka fegurðarblundinn á þetta :)

Kv. Crazy person.........


» 3 hafa sagt sína skoðun