Ég er í vinnunni og er gjörsamlega að leka niður af leiðindum... ég
er búin að fá einn kúnna inn síðan kl 12 og það var fyrir
klukkutíma síðan... ég er semsagt búin að sitja hérna í tvo
klukkutíma og afgreiða 1!!!!!!!!!!!!!!!
Lena og Dóra eru báðar búnar að koma í heimsókn til mín í sígópásu
það bjargaði mér alveg... veit ekki alveg hvað ég á að gera af
mérþað sem eftir er af deginum!
Ég var ógeðsleg hetja áðan... ég drap minn fyrsta geitung ALVEG
SJÁLF... ég er svo stolt af mér að það er ekki fyndið... en ég verð
að viðurkenna það að ég var með hjartað í buxunum alveg þangað til
hann var dauður.... spreyjaði á hann ca hálfum brúsa af hárspreyi
og drap hann svo með dagskránni

og núna get ég andað rólega
þangað til ég fæ annað kvikindi hérna inn
Væri alveg til í að fá frost í svona tvo þrá daga til að gera
endanlega útaf við þessi kvikindi......
Það er búið að ákveða það að búðinni minni verður lokað 20
september.. þá hef ég tíma fram að mánaðarmótum til að pakka öllu
niður og endursenda... jey hlakka ekkert smá til eða þannig... svo
er það bara nætursalan um mánaðarmótin... endalaus hamingja þar...
þó það sé nú kannski ekki draumadjobbið að þá er það samt skárra en
ekki neitt og bragi getur verið ánægður....
Fasteignasalinn var að hringja matið á húsinu mínu er tilbúið og ég
má sækja það þegar ég vil..... sjibbííí þá fæ ég að vita hvað ég´á
margar milljónir

hlakka geðveikt til.......
Eldri bróðir minn var svo góður að skemma fyrir mér framtíðarplanið
mitt hehe en samt bara fyndið hvað ég er mikill auli... þegar ég
var lítil sagði ég alltaf að ég ætlaði að verða meinatæknir eins og
Heiða mágkona... svo þegar ég varð eldri og komst aðþví að í því
starfi fælist það verkefni að stinga annað fólk með nálum þá
snarhætti ég við og fór að leita að einhverju öðru áhugaverðu sem
tókst ekki.... en þá fann ég þetta... lífeindafræði... og svo ákvað
bróðir minn að vera svo elskulegur og segja mér að þetta væri bara
nýtt nafn yfir meinatækni þannig ég verð bara að gjöra svo vel að
láta mig hafa það að stinga fólk með nálum því ég skipti sko ekki
aftur um skoðun!!! og hana nú... þannig hver vill vera
tilraunardýrið mitt??? hehe
svo af´því að ég er komin útí þessa sálma um hvað ég er ljóshærð
stundum þá á ég eitt gullkorn fráþví í gærkvöldi.... minn
heittelskaði var að sýna mér eitthvað skot í byssuna sína sem pabbi
hans hafði gefið honum.... þetta var svona pappaskot.... ég var
búin að velta þessu lengi fyrirmér á meðan ég var að skoða
skotið... spurði svo eins og asni...finnurðu þá eitthvað fyrir því
þegar þú skýtur þessu?? jói var ekki alveg að fatta hvað ég var að
meina og ég ekki heldur fyrr en ég ældi útúr mér annari fáránlegri
spurningu... þá spurði ég hvort hann væri að meina að hólkurinn
utan um skotið væri úr pappa... sem reyndist vera rétt... en það
sem ég var búin að ímynda mér var að það væri pappi inní skotinu
því áferðin utan áþví var sko ekki eins og pappi... og ég hélt að
jói yrði ekki eldri svo sprakk ég náttla úr hlátri líka þegar ég
fattaði hvað ég hafði sagt... heilasellurnar voru frekar sofandi
þessa stundina....
ég held að veikindin hafi farið svona með mig.... þá verð ég að
segja frá öðru svona atviki... við horgemsarnir vorum að spila
trivial heima í veikindunum og ég fékk einföldustu spurningu í
heimi... allavega einföld fyrir svona friends sjúkling eins og
mig... ég fékk semsagt hvað heitir barþjóninn á kaffihúsinu Central
Perk í sjónvarpsþáttunum vinum? jújú auðvitað gat ég svarað því og
þá ákvað jói að vera sniðugur og sagði eitthvað nafn á fyrrverandi
forseta bandaríkjana... man ekki alveg hvað hann sagði...ég bara
ohhh var verið að meina hvað hann heitir í alvöru... og um leið og
ég sleppti orðinu þá fattaði ég hvað hann hafði sagt og svo
heimskulega kommentið sem kom frá mér og við veltumst um af
hlátri..... já það er sko alltaf fjör á mínu heimili.... það er sko
ekkert auðvelt að búa með svona hrekkjusvíni

en ég elska hann
samt.....
núna get ég alveg ímyndað mér að nokkrir séu hlægjandi og já ég
veit ÉG ER LJÓSKA Í DULARGERFI..... ég tek svona köst annað
slagið... sem betur fer bara annað slagið hehehe
ok annar góður punktur.... þó að ég sé rosalega gáfuð þegar kemur
að skólabókumog einhverju svoleiðis þá er annað í lífinu sem
virðist fara framhjá mér.... ég var einu sinni á leiðinni til RVK
með ákveðnum aðila sem ég veit að elskar þessa sögu.... þá er
ég einhverstaðar ein í mínum heimi.... og fer að pæla í
snúningshraðamælinum í bílnum og spyr svo eins og bavíani... sýnir
þessi mælir hvað dekkin snúast oft á mínútu?? og ég hef aldrei á
ævinni heyrt nokkurn mann hlægja eins mikið.... auðvitað er þetta
fyndið núna en ég var svo að meina þetta....
ég á örugglega mörg önnur svona móment sem ég man ekki eftir semþið
megið alveg endielga minna mig á
ég vona að þið hafið ekki mistt allt álit á mér litla gáfnaljósinu
ég er örugglega ekki sú versta..... en þannig er nú það... þetta
sem áttu bara að vera nokkrar línur eru orðin heil ritgerð og svona
rétt í lokinn ætla ég að henda inn nokkru sniðugu drasli semég stal
af blogginu hans Vignis... takkfyrir mig Vignir...
speki dagsins:
THE PAOMNNEHAL PWEOR OF THE HMUAN MNID. Aoccdrnig to a rscheearch
at cmabrigde Uinervtisy, it deosn t mttaer in waht oredr the
ltteers in a wrod are, the olny iprmoatnt tihng is taht the frist
and lsat ltteer be in the rghit pclae. The rset can be a taotl mses
and you can sitll raed it wouthit porbelm. Tihs is bcuseae the
huamn mnid deos not raed ervey lteter by istlef, but the wrid as a
wlohe.
skrítinn skítur
njótið vel þangað til næst
kv. mrs blondie